Karlmenn... karlmenn... karlmenn... hver skilur þá??? er hægt að skilja þá??? ekki skil ég þá... held þeir skilji sig ekki einu sinni sjálfir....
...gefst upp
» 3 hafa sagt sína skoðun
jæja... ekki góð helgi að klárast hjá mér...er búin að liggja til skiptis í rúminu og sófanum með háan hita og streptokokka var með nálægt 40 stiga hita á föstudagskvöld og laugardag.. fór þá á læknavaktina á lau og hún (læknirinn) greindi mig með streptokokka er búin að liggja síðan að DREPAST í hálsinum.. get ekkert borðað, á meira að segja erfitt með að borða eitt stykki after eight er að pína í mig vökva... aaaaarrrrrrrrrrrrgggggggggg hvað ég þoli ekki að vera svona aumingjaleg og liggja bara hálf máttlaus og geta ekki neitt... heimilið mitt er eins og svínastía.. börnin léku alveg lausum hala frá því eftir vinnu og þangað til ég fór til doksa í gær.. þá tók mamma þau og svo tók Íris sys Borgar og verður með hann til morguns og Erna fór til Laufeyjar og kemur á eftir, ég á svo góða fjölskyldu
Vona bara að ég fari að hressast fljótlega.. held samt að ég nái ekki að verða nógu hress í vinnu á morgun sem veldur smá auka stressi... sérstaklega þar sem vikan hjá mér er fullbókuð og ekki auðvelt að redda kúnnunum.. þarf þá að vinna frameftir.. jú eða taka á laugardaginn næsta... aaaaaaarrrrrrrrrrrggggggggg hvað ég þoli ekki svona
» 4 hafa sagt sína skoðun
1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt. 2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár. 3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er afþví þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus. 4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu. 6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna. 7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi. 8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista. 9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm. 10. Þú virkilega leist tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm. 11. Svo hlærðu af heimsku þinni. 12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar. EF þú féllst fyrir þessu ... Aha ekkert svona! þú féllst fyrir þessu!!!
» 0 hafa sagt sína skoðun
Sælir lesendur góðir
Nú er ég sko aldeilis hissa á sjálfri mér.. var ekki alls fyrir löngu á leið niður í djúpt þunglyndi.. allt var ómögulegt og ég nennti ekki neinu, þvotturinn safnaðist upp og ég lá bara í sófanum og vorkenndi sjálfri mér...
...en á mánudaginn reif ég mig upp og eftir vinnu sótti ég Borgar, fór í fiskbúðina og keypti í matinn. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim var að skipta um föt og fór á hjólið mitt sem hefur staðið óhreyft í meira en hálft ár ég hjólaði í heilar 15 min og var algjörlega búin eftir það... svo búin í fótunum að ég skalf öll þegar ég fór af hjólinu hahahah en.. þá henti ég matnum í ofninn og fór svo á gólfið að gera maga- og bakæfingar og svo teygjur ég er svo aldeilis hlessa
...þetta er ekki búið... gékk alveg frá eftir matinn (nenni því ekki alltaf), kom svo börnum í ból, þá tók þvotturinn við... gekk frá ÖLLUM þvottinum sem hafði beðið eftir mér að brjóta saman og ég meira að segja gekk frá honum í skápana...
halló.... eruð þið enn á lífi... það er nú á mörkunum að ég sé það.. hahaha
Ekki nóg með þetta... heldur fór ég aftur á hjólið í dag og tók svipaða æfingu og á mán og svo er ég líka að vinna í þvottinum! ekkert smá dugleg og er bara djö.. stolt af mér núna... ÁFRAM ARNA
Hvað finnst ykkur um haustið?
Sjálfri finnst mér haustið fallegasti og rómantískasti tími ársins. Farið að rökkva og kósý að hafa kertaljós á kvöldin og kúra með teppi.
En mikið svakalega getur það samt verið einmanalegt að vera alltaf einn í sófa með teppi og kertaljós enginn sætur að "spjalla" og ekkert spennandi að gerast i þeim málum frekar en venjulega... vinkonurnar flestar að slá sér upp með fínum folum.. hvar er folinn minn???
Hvað er það með mig... átti yfirleitt alltaf kærasta hér áður fyrr og var sjaldan einmana, en núna er ég búin að vera á lausu í næstum 4 ár og ekkert er að gerast... er ég svona fráhrindandi? eða óheppin? eða hvað??? Flestir þeir sem reyna við mig eru annað hvort bjánar eða lofaðir.. og þeir sem mér hefur litist vel á undanfarið eru þá ekki boði, kemur í ljós að þeir eru lofaðir eða þeir hafa ekki áhuga... Hvað er málið....
ætla að fara að gráta í koddann... reyna að láta mér dreyma fínan fola sem ég hef áhuga á og hefur áhuga til baka... ein svakalega einmana þessa stundina
Sá þetta á síðunni hjá Hörpu og Soffíu.. fannst það svo flottar spurningar að ég ákvað að "stela" þeim hingað til mín
Endilega svarið þeim MJÖG VANDLEGA!!!
1. Hvað kallarðu mig? 2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég? 3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár? 4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug? 5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu? 6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug? 7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit? 8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig? 9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn? 10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig? 11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ? 12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig? 13. Hvernig stráka fíla ég? 14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma? 15. Hvað er mest einkennandi við mig? 16. Hvaða búðir elska ég að fara í?
Hlakka til að lesa
» 6 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá er dagurinn búinn og er mín bara svaka ánægð með afrakstur dagsins!
Ég er ÍSLANDSMEISTARI í ásetningu gervinagla með french manicure
nenni ekki að segja meira vegna mikillar þreytu sökum MJÖG lítils svefns undanfarið.. m.a. ekki nema 2 tímar s.l. nótt...
Draumakveðjur - Íslandsmeistarinn á leið á heimsmeistaramót á næstunni...
jæja þá er komið að því.... keppnin er á morgun og mín er bara að chilla hér með rakamaska í framan hihi er búin að vera svo stressuð fyrir keppnina í marga daga.. en einhvern veginn að slaka núna.. skrítið... en svona er ég bara... stórskrítin vona bara að stressið blossi ekki of mikið upp í fyrramálið.. það væri náttúrulega bara týpískt sko... en ég ætla bara að gera mitt besta og vona að það verði nógu gott
Ætla núna að reyna að gera þetta sem ég kalla heimili að mannabústað.. svona áður en ég get farið að undirbúa mig fyrir morgundaginn..
bæjó - kyss kyss og STÓRT knús
» 2 hafa sagt sína skoðun
Ég hef ákveðið að halda áfram að skrifa eitthvað hérna þar sem ég hef fengið alveg heil 3 comment á síðustu færslu
ég kom frá London fyrir um sólarhring og stofugólfið mitt er eins og eftir sprengju öll fötin út um allt sem ég keypti!!! en það var náttúrurlega BARA frábært úti.
Föstudaginn lentum við úti um hádegisbil og vorum komin á hótelið rétt eftir hádegi... fórum aðeins á rölt um umhverfið og fengum okkur að borða, svo aftur á hótelið að gera okkur klár fyrir kvöldið. Fórum svo á japanskan veitingastað þar sem kokkurinn eldaði matinn á borðinu okkar. WOW hvað það var ekkert smá flott.. hann var svo klár og flottur að kokka þarna fyrir framan okkur og tók geðveika takta við matseldina að maður var gjörsamlega dáleiddur og mér fannst það eiginlega meira spennandi en maturinn í raun... rækjur og solis.. er ekkert sérlega spennt fyrir þeim.. en eitt er ég svakalega stolt af... ég borðaði með prjónum í fyrsta skipti á ævinni og var bara nok klár eftir matinn og nokkra kokteila eða svo fórum við á ABBA-showið sem var snilldin ein þetta kvöldið var bara farið snemma upp á hótel, aðeins rabbað þar yfir en öl fyrir svefninn.
Laugardagurinn byrjaði snemma með morgunmat og svo bara sjop til jú drop Við Jóhanna notuðum daginn í smá versl á meðan hár-skvísurnar fóru á námskeið og strákarnir á fótboltaleik. Eftir erfiðan dag og miiiikið versl var svo tekin smá leggja hjá mér og Jóhönnu... Var svo vakin upp við þegar Sigrún kom inn eins og geðsjúklingur með túberað hárið út í loftið og klemmu í hárinu... nokkuð fríkí saga á bak við það... og ætla ekki að fara nánar út í hana hahaha þá var kominn tími til að taka sig til fyrir kvöldið.. fórum á semi fínan veitingastað.. kannski í svona Hard Rock- stíl... fínt að drekka/borða þarna en við þurftum að bíða aðeins of lengi eftir borðinu... þannig að við borðuðum ekki fyrr en um 23-00... man ekki alveg tímasetninguna...en allavega allt of seint... en svo eftir það var bara farið í hótelpartý á einu herberginu og skemmtum við okkur bara frekar vel með fallegar tennur og gleraugu sem Hafdís tók með sér út
Sunnudagurinn var tekinn í verslun líka en farið svo snemma heim að gera okkur fín fyrir kvöldið þar sem árshátíðin okkar var haldin það kvöldið. Við fórum öll rosa fín á fínan veitingastað þar sem við sátum heil lengi að borða alls konar góða rétti og drykki svo var farið á létt trall og svo á herbergi í partý og skemmtum við okkur aftur mjög vel með leikmuni hennar Hafdísar hihi ótrúlegt hvað þarf lítð til að skemmta okkur vildi að ég gæti sett eitthvað af myndunum hérna,.. en ég kann það ekki.. þarf að skoða það mál betur...
Síðast en ekki síst var mánudagurinn tekinn í smá last min sjopping alltaf hægt að versla meira.. meira.. meira.. enda var mín alveg með 35 kg í farangur heim
...EN ég keypti ENGAN óþarfa
Þessi ferð var BARA snilldin ein hef ekki skemmt mér svona vel lengi og mun lifa lengi vel á þessari ferð takk alveg æðislega þið frábæru ferðafélagar fyrir ógleymanlega helgi
Út í annað málefni... ég er að fara að keppa í nöglum næstu helgi á sýningunni Konan sem verður haldin í Laugardagshöllinni. Keppnin verður haldin á sunnudaginn og er hægt að finna uppl hér http://konan.iceman.is/Konan/Forsida/ ef þið eruð forvitin.
,...og já það er hægt að koma og horfa á Brynja mín endilega láttu sjá þig ef þú ert ekki busy við eitthvað annað...
Jæja ætla að láta þetta nægja í bili elskurnar mínar... mín er orðin frekar sybbin og ætla að fara að henda mér á koddann...
over and out...
jæja þið... ég er að velta því fyrir mér hvort ég eigi eitthvað að vera að halda þessu áfram... er ekkert allt of dugleg að blogga... en finnst samt alltaf gaman að fá komment á það sem ég skrifa... hvað svo sem það nú er..
En ætla allavega aðeins að halda áfram... það er ýmislegt búið að gerast síðan síðast... segi meira frá því seinna því ég ætla bara að hafa þetta stutt núna..
Langar aðallega að segja ykkur frá því að ég er að fara til London á föstudaginn og svo helgina á eftir er ég að fara að keppa aftur í nöglum... hef ekki keppt síðan 2002 og er frekar spennt/stressuð... en ætla bara að gera mitt besta og sjá svo hvað gerist
En jæja ætla að fara að henda mér í ból.. bið að heilsa í bili
kiss kiss :-x
hæhæ kominn tími á smá blogg hérna... en ég ætla bara að hafa þetta stutt... Erna Lína var að fara til útlanda í morgun í fyrsta skiptið á ævinni sinni og Borgar er með pabba sínum í skírn í dag... þannig að ég ætti í raun að vera barnlaus.. en er það nú samt ekki er að passa litla kútinn hennar Önnu Siggu en það er bara í dag.. hún fór í brúðkaup og kemur í kvöld.. kannski við höfum bara kósýkvöld, video eða spil eða eitthvað í kvöld... skrítið að vera barnlaus en ekki í raun að "þurfa" á því að halda... það gerist ekki oft hjá mér.. get talið þau skipti á fingrum annarrar handar alveg síðstu rúm 3 ár...(síðan ég skildi)... hummm hvað á mar að gera... ef ekki kósý kvöld... hafið þið hugmyndir???
jæja ætla að segja þetta gott í bili.. ætla að nýta daginn í eitthvað sniðugt.. eins og kannski að taka til og þrífa..
segi ykkur frá Búlgaríu seinna
góða helgi elskurnar
Hello alle sammen... langt síðan síðast... er ekki búin að vera dugleg við bloggið mitt hérna... enda var tölvan mín með einhverja stæla.. vildi ekki kveikja á sér en síðan síðast er ýmislegt búið að gerast... en ég nenni ekki að vera að týna það allt til hérna... en núna síðasta mánudag fóru börnin bæði í kirtlatöku og var það algjört bíó að vera þarna ein með 2 stk börn í vöknun á sama tíma.. soldið strembið en samt frekar fyndið.. bæði gargandi og vælandi, ég með BU í fanginu að reyna að halda honum þannig að hann myndi ekki henda sér í gólfið og svo EL á rúmi við hliðina haldandi utan um hálsinn á mér en mikið vorkenndi mamman litlu ungunum sínum að líða svona illa
Í dag heilsast þeim bara mjög vel, EL var fljót að jafna sig enda voru bara nefkirtlarnir teknir úr henni, en hún var soldið aum samt í hálsinum vegna þess að barkaslanga var sett í hálsinn á henni í svæfingunni... en hún var ekki lengi að jafna sig á því og fór í skólann í gær (þ.e. miðvikudaginn síðasta) og finnur ekki fyrir neinu núna BU er líka nokkuð hress þrátt fyrir "allan pakkann" það sem var gert við hann var að háls- og nefkirtlar voru teknir, kinnholur skolaðar og eyru hreynsuð ásamt því að gamalt rör sem var ekki enn á sínum stað var tekið. Hann er enn aðeins aumur í hálsinum en er samt mjög hress þrátt fyrir allt þetta og borðar og drekkur nokkuð vel
Síðustu helgi fór ég í brúðkaup hjá pari úr sumarbústaða-grúppunni, Brynju Sif og Óðni. Æðislega vel heppnað brúðkaup, meiriháttar matur og veislustjórinn sennilega sá skemmtilegasti þó víða væri leitað Innilega til hamingju kæru brúðhjón!!!
Tók mér smá pásu… en þá dó tölvan aftur… en er í lagi eins og er... þannig að nú er ég komin aftur nokkrum dögum síðar en núna er kl rúmlega 1 aðfaranótt fimmtudagsins 1. júní og ég er að pakka niður fyrir Búlgaríu!!! hafði planað að vakna kl hálf 4 til að vera komin upp á flugvöll kl hálf 5, á að fljúga kl 7.. en nú er spurning hvort það taki því nokkuð að vera að fara að sofa… sé til hvernig gengur að pakka hvort ég leggi mig í svona eins og 1-2 klst… en ætla nú ekki að sóa tímanum í eitthvað tölvurugl þannig að ég bið bara að heilsa í bili
segi ykkur næst frá Búlgaríu og öllu því geggjaða sem gerist þar